EPLIÐ HÁRSTOFA
Við erum sérfræðingar í hári ! Við veitum einstaklingsbundna þjónustu og leitumst við að
20/09/2026
MYNDLISTASÝNING Í EPLINU – ELVA HREIÐARSDÓTTIR
Elva Hreiðarsdóttir sýnir málverk unnin með blandaðri tækni. Öll verkin, fyrir utan eitt, eru túlkun hennar á hughrifum sem hún varð fyrir þegar hún fór fótgangandi umhverfis Snæfellsjökul í listnáms tilgangi. Öll verkin eru til sölu.
Elva hefur starfað sem myndlistarmaður og myndlistarkennari frá árinu 1989. Hún lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands (B.ed) 1989, Listaháskóla Íslands (BA) 2000 og (MA) 2023. Þá hefur hún sótt fjölda námskeiða hérlendis og erlendis.
Elva hefur haldið um þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis. Hún hefur einnig kennt myndlist víða og haldið fjölda námskeiða á eigin vegum fyrir börn, ungmenni, myndlistarfólk og kennara.
Nánari upplýsingar má finna á www.elva.is eða senda tölvupóst á [email protected]
07/06/2026
Við bjóðum Áslaugu og Kristján hjartanlega velkomin með sýningu þeirra á Eplið hárstofu.
Eplið og eikin
Áslaug Thorlacius sýnir fjögur málverk unnin með olíu á pappír.
Myndirnar eru svipmyndir úr nánasta umhverfi listakonunnar,
ýmist frá hennar eigin heimili eða hennar nánustu, í Reykjavík,
Malmö og á Blönduósi.
Áslaug hefur starfað sem myndlistarmaður frá því hún lauk
námi árið 1991. Hún hefur haldið á þriðja tug einkasýninga og
tekið þátt í fjölda samsýninga. Samhliða störfum að myndlist
hefur Áslaug starfað við kennslu og sinnt fjölbreyttum
félagsstörfum fyrir hönd listamanna.
Árið 2014 tók hún við skólastjórn Myndlistaskólans í Reykjavík
og sinnir því starfi enn.
Myndirnar eru til sölu og kosta 340.000 kr. hver.
Kristján Thorlacius (Kjáni Thorlacius) sýnir fjórar innrammaðar
teikningar sem unnar eru með blandaðri tækni á gamlan og
upplitaðan pappír. Pappírinn fann hann í gamalli prentsmiðju í
Amsterdam er hann dvaldi þar um tíma. Kristján byrjar á að
gera málverk en þurrkar það svo út með tippexi, krotar svo í
útlínur þess og úr verður teikning.
Kristján útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2020 en síðan
þá hefur hann starfað sem myndlistarmaður á Íslandi og í
Hollandi. Kristján er einn af stofnmeðlimum kollegtívunnar og
fyrrum listamannareknarýmisins King og B**g. Myndirnar eru til
sölu, þær stærri á 290.000 kr. og sú minni á 220.000 kr
05/02/2026
Við bjóðum Þórunni Báru Björnsdóttir hjartanlega velkomna með sýningu sína á Eplið hárstofu.
Þórunn Bára Björnsdóttir:
Markmið listsköpunar minnar er að auka vellíðan, vekja athygli á gildi ósnortinnar náttúru Íslands og huga að samspili manns og umhverfis. Að iðka og skoða list þjálfar skynvitund og gagnrýna hugsun. List og vísindi hafa samlegðaráhrif. Náttúran býr yfir visku, seiglu og auðmýkt ásamt með gæðum sem næra líkama og sál. List tengir okkur við hið einfalda og hið flókna í tilverunni og hjálpar okkur að sjá lífið í nýju ljósi, þegar vaninn gerir margt ósýnilegt, og getur þannig vakið okkur til umhugsunar um eigin stöðu.
Þórunn Bára útskrifaðist BA úr málaradeild listaháskólans í Edinborg og MALS frá Wesleyan háskólanum í Bandaríkjunum. Hún starfar sem listamaður í Reykjavík með tilvísun í lífríki Surtseyjar og íslenskar plöntur á hrjóstrugu landi. Röð verka hennar sýna algengar villtar jurtir. Verkin vísa til landnámsgróðurs á lífvana nýju hrauni í lok Surtseyjargoss og eru unnin með akrýllit á léreft út frá eigin skynupplifun hennar án beinnar fyrirmyndar eða staðsetningar í tíma og rúmi.
Í huga Þórunnar Báru er sköpunarferlið það sem drífur verkin áfram. Áhersla hennar er á að fanga athygli áhorfandans með litríkum hlutbundnum og óhlutbundnum formum. Hún nýtir sér fegurð til að örva upplifun á verkunum. Það takast á læsileg form sem kalla fram öryggi og vellíðan og óhlutbundin form sem styrkir einstaklingsbundið innsæi í hverju verki fyrir sig. Þróun lífs á Surtsey er í huga Þórunnar Báru samnefnari fyrir uppruna, framvindu og endalok gróðurs á jörðinni: jörð sem er eina heimili okkar og glímir nú við vistkreppu. Við berum sameiginlega ábyrgð á stöðu loftslagsmála og að vernda vistkeðjuna.
Verið velkomin á vinnustofuna á Grenimel 21 og hafið samband í síma 6621845.
Instagram: thorunn bara bjornsdottir@thorunn bara artist iceland
Vefsíða: https://www.thorunnbara.com/
Sjá einnig:
Google ( Image and Video ) thorunn bara surtsey; thorunn bara surtsey mosar;
thorunn bara surtsey flettur
24/11/2025
Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns Handled Handled Handled Touching pears with a lily Handled Handled Fondling still life Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled handled
24/11/2025
Verið velkomin á sýningu Ragnhildur Jóhanns sem stendur yfir á Eplinu frá 1. nóv '25-31 jan '26
Ragnhildur Jóhanns er fædd í Hafnarfirði árið 1977. Hún lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og á að baki fjölbreyttan listferil. Hún hefur haldið tíu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Ragnhildur er einnig höfundur þrettán bókverka.
Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns Handled Handled Handled Touching pears with a lily Handled Handled Fondling still life Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled handled
26/08/2025
Verið hjartanlega velkominn á sýningu Jóhönnu Sveinsdóttur sem stendur nú yfir á Eplinu.
Facebook síða: Jóhanna Sveins. Vinnustofa. Email:[email protected] sími:8955045
26/08/2025
Verið hjartanlega velkomin á sýningu Jóhönnu Sveinsdóttur sem nú stendur yfir á Eplinu.
Jóhanna Sveinsdóttir
2024
Jóhanna Sveinsdóttir stundaði nám í Myndlista og handíðaskóla Íslands 1988-1991 og síðan í The art students league 1991-1992. Hún nam kennslufræði myndlistar við Listaháskóla Íslands 2002-2003 og sérkennslufræði við Kennaraháskóla Íslands 2005-2006. Hún á rætur í íslenskri sveit og sækir oft innblástur í minningar þaðan.
Jóhanna hefur undanfarin ár unnið með einþrykk og blandaða tækni á japanpappír. Þrykkin eru marglaga með mörgum litalögum sem gefur dýpt og tilfinningu fyrir jarðlögum og fyrri tímum. Í grunninn notar hún þrykk af gelplötum og notar lauf og strá við þrykkið og nær þannig fram náttúrulegum formum og áferð. Hið smáa og fínlega í náttúrunni er skoðað. Rýna þarf í myndflötinn og stundum birtist þá eitthvað óvænt, kannski lítið minningarbrot en Jóhanna á rætur í íslenskri sveit og minningar þaðan eiga oft leið inn í myndflötinn. Litadýrð og gleði ríkir en jafnframt hangir óræð framtíð yfir. Allt getur breyst, örsnöggt. Í óvissunni er þörf á að sækja í góðar minningar, í litina og formin, veðurbrigði og birtuna í margbrotinni náttúru sem heilar og huggar. Skordýr og fleiri dýr eiga greiða leið inn á myndirnar og minna þau okkur mennina á tilverurétt sinn, gefa okkur aðvarandi auga. Enda er lífríkið, stórt og smátt, órjúfandi heild. Ævintýralegur blær skapast með við tilkomu dýranna, ósögð saga um hvað gerist næst.
Verkin í Eplinu eru öll frá árinu 2024 og eru hluti af tveimur síðustu einkasýningum Jóhönnu sem nefndust Núllstilling og Eitt andartak. Sýningarnar vísuðu annarsvegar til mikilvægi þess að leita í grunninn, til náttúrunnar, slaka á og núllstilla sig og hinsvegar til hverfulleikans og mikilvægi alls lífs ekki síst þess smáa til þess að hringrás lífsins viðhaldist.
Jóhanna hefur látið gera silkiverk eftir hluta verkanna, slæður og klæðnað svo hægt er nánast að sveipa sig náttúrunni sjálfri. Einnig gerir hún ljósaverk/lampa í djúpum seiðandi litum.
Nánari upplýsingar fást á:
Facebook síða: Jóhanna Sveins. Vinnustofa
Email: [email protected]
Sími: +354 8955045
09/06/2025
Gaman að þessu:
Eik fasteignafélag Reykjavík skartar mörgum þekktum kennileitum sem hvert um sig setur svip á ásýnd borgarinnar. Borgartún 26, eða B26 eins og byggingin er merkt með áberandi hætti, er eitt þeirra. Í þessari glæsilegu byggingu í hjarta fjármála- og viðskiptahverfis höfuðborgarinnar er augljóslega...
26/05/2025
Verið hjartanlega velkomin á sýningu Hlyns Helgasonar-Valin verk. Sýningin stendur yfir frá 1. mai til31. júní.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Address
Borgartún 26
Reykjavík
105
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 17:00 |
| Tuesday | 09:00 - 18:00 |
| Wednesday | 09:00 - 18:00 |
| Thursday | 09:00 - 18:00 |
| Friday | 09:00 - 17:00 |