Grasa Kata
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmundsdóttir og þessi síða er tileinkuð nytja- og lækningajurtum og námi mínu í grasalækningum í gegnum vefsíðuna grasakonan.is
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmuhndsdóttir og hóf nám í grasalækningum haustið 2025
19/08/2026
Fékk gefið grænkál og ákvað að gera grænkálspestó, fann uppskrift frá Sollu Eiríks. Átti ekki heslihnetur en setti valhnetur í staðinn og þetta bragðast ansi vel 🥰
15/08/2026
Núna er beitilyngið í blóma en það er ágætis te jurt, líka svo fallega rauðbleikt á litinn 😍
Virkni þess samkvæmt Arnbjörgu Lindu grasakonu er að það er gott við blöðrubólgu og sýkingum í þvagfærum þá þykir gott að drekka te af jurtinni til að eiga hægara með svefn. Smyrsl af jurtinni þykja góð gegn gikt og öðrum bólgum 😍
13/08/2026
Um að gera að nýta hvönnina, hér eru nokkrar hugmyndir inná NLFÍ😍
Ætihvönn í allan mat! Uppskriftir frá Heilsustofnun NLFÍ í fyrstu athugasemd.
13/08/2026
Nú styttist í að námið mitt hjá grasakonan.is hefjist aftur (17. ágúst) ég mæli svo sannarlega með þessu námi 😍 ef allt gengur eftir má ég titla mig sem grasalækni næsta vor. Ég er búin að tína þónokkrar jurtir og þurrka í sumar m.a. hvönn, blóðberg, vallhumal, birki og hlakka til að nýta þær í vetur 🥰 Svo er berjatíminn að hefjast 😍
12/08/2026
Prófaði að gera hlaup (sultu) úr blómum af sigurskúf, tókst svona ljómandi vel og liturinn einstaklega fallegur
Uppskrift:
4 bollar nýtínd blóm af sigurskúf
1 l vatn
800 gr sykur (með pektin) eða 1 pakki pektin
60 ml sítrónusafi
Blómin sett útí 1 l af nýsoðnu vatni og látin bíða í ca 30 mín. Blómin síuð frá og sykri og sítrónusafa blandað saman við soðið þar til byrjar að þykkna ( hlaupa) ca 1-1 1/2 tíma, gott að gera prufu setja teskeið í glas og smástund inn í ísskáp. Setjið sultuna heita í sótthreinsaðar krukkur. Geymist í ísskápnum eftir opnun.
Gott ofaná brauð
05/08/2026
Í nágrenni við mig vex mikið af sigurskúf sem blómstrar þessa dagana fallegum bleikum blómum. Fékk uppskrift af blómahunangi og varð náttúrulega að prófa. Lauf og ungir laufsprotar eru helstu lækningahlutarnir en blóm eru einnig notuð til lækninga og í matargerð. Jurtin er m.a. talin bólgueyðandi, þvagörvandi, slímlosandi og græðandi.
Uppskriptin er sàraeinföld
2 bollar blóm af sigurskúf
250 ml vatn
250 ml hunang
Blómin hreinsuð og nýsoðnu vatni helt yfir þau og látið kólna, þá er safinn síaður frá og sett í pott ásamt hunanginu, soðið í 10 mín og helt í hreina krukku.
Gott útá jógúrt eða bara á ristað brauð.
26/07/2026
Smá sýnishorn af flórunni í Týrol, Austurríki og Ítalíu
16/07/2026
Fleiri falleg blóm
07/07/2026
Fallegu íslensku jurtirnar 🥰🌿
02/07/2026
Fyrir áhugasama um jurtir vil ég benda á Flóruspilið til tveir mismunandi stokkar með fallegum myndum og fróðleik um íslenskar jurtir, spilað eins og veiðimann
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Svalbarð
Dalvík
621